Stolt
Mér brá smá í dag þegar ég ákvað að skoða smá á mbl.is í dag, ég sá titilinn Íslenskur vísindamaður kollvarpar vísindakenningu, og fannst það áhugavert, ég meina maður fyllist alltaf stolti þegar maður sér að íslendingar eru að standa sig vel, enda erum við nánast öll uppfyllt af óbugandi þjóðarstolti, en þegar ég sá hvaða vísinindamaður það var fylltist ég enn meira stolti, enda ekki skrítið þar sem þetta var frænka mín, hún Ragnhildur Þóra Káradóttir.
Ef ég hefði brot af hennar gáfum væri ég heppin, og hefði líklega flogið í gegnum tannlækninn.
Hér er svo fréttin af mbl.is
Niðurstöður nýlegrar greinar í vísindatímaritinu Nature kollvarpa áður viðteknum hugmyndum í taugavísindum. Fyrsti höfundur greinarinnar er ungur, íslenskur vísindamaður, Ragnhildur Káradóttir.
Hún stundar doktorsnám í taugavísindum við University College London undir handleiðslu David Attwell. Niðurstöðurnar gætu hjálpað verulega til við að skilja betur taugasjúkdómana MS, heilalömun, mænuskaða og heilablóðfall.
Ragnhildur og samstarfsfólk hennar uppgötvuðu að stoðfrumur sem mynda taugaslíður reynast hafa svokallaða NMDA-viðtaka, sem áður voru taldir vera einungis á taugafrumum. Fundur viðtakans hnekkir viðteknum hugmyndum í taugavísindum, enda var talið að hann væri alls ekki á stoðfrumunum.
„Þetta er eins og að hafa unnið gull í 4 sinnum 100 metra boðhlaupi á Ólympíuleikunum,“ var haft eftir samstarfskonu Ragnhildar, Lindu Bergersen, í norskum dagblöðum.
Ragnhildur vann áður hjá Sjálfsbjörg við meðhöndlun MS-sjúklinga og segir sig alltaf hafa langað til að fást eitthvað við sjúkdóminn. „Það er afar erfitt að finna lækninguna en mig langaði að reyna að skilja MS betur. Mig langaði líka að skilja betur heilann yfirhöfuð. Frá því að ég man eftir mér hefur mér fundist heilinn vera ofsalega spennandi!“
Það sem rennir enn styrkari stoðum undir óvænta niðurstöðu Ragnhildar og samstarfsfólks hennar er að vísindamenn í Leicester fundu viðtakann í sjóntaug músa á sama tíma og þau fundu hann í stoðfrumum í heila og mænu.
Viðbrögðin hafa ekki látið á sér standa. Tímaritið Science valdi niðurstöður hópanna sem uppgötvun vikunnar í taugavísindum (breakthrough of the week) og útdráttur úr greinunum mun birtast í Nature Review. Þar eru birtar vel valdar yfirlitsgreinar í taugavísindum.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home