mánudagur, ágúst 07, 2006

Fréttir

Vá hvað það er langt síðan ég bloggaði síðast, skamm skamm.... jæja það er ýmislegt búið að gerast síðan seinast, erum búin að flytja og meira segja búin að vera hérna í 2 mánuði, og það er bara æðislegt það tók smá tíma að koma sér fyrir, (erum búin að vera smá löt) en við tókum okkur til og gátum loksins haldið innflutnings partý, sem var bara æðislegt og heppnaðist bara alveg rosalega vel. Við föttuðum svo um kvöldið að við héldum partýið á 6 mánaða afmælinu, sem var bara æðislegt.
Svo erum við bæði að skipta um vinnu, ég hef fengið nóg af rónum og leiðinlegum viðskiptavinum og hef ákveðið að fara aftur í bakaríið, að miklu leyti vegna vinnutímans, sme gerir það að verkum að ég get útréttað án þess að þurfa biðja um frí til þess, sem er ekkert smá mikill kostur. Kiddi hefur fengið nóg af IKEA og einnig leiðinlegum viðskiptavinum og er búinn að fá vinnu hjá S. Helgasyni, sem er steinsmiðja.
Svo er það besta fréttin af öllum, á föstudaginn kom ég heim úr vinnunni og þá var Kiddi búinn að taka til, og færa eldhúsborðið inn í stofu og búinn að kveikja á kertum og var að elda alveg dýrindismáltíð, ég fékk skipun um að skipta yfir í eitthvað fínna, svo var ég leidd inn í stofu, þar sem við borðuðum þennan alveg geðveikt góða mat, en það var ekki búið enn þegar við vorum búin að borða, settumst við í sófann og Kiddi kom fram með osta og kex, þetta var alveg yndisleg stund, eftir smá stund stóðum við upp og fórum að dansa. þetta var alveg yndilegt, svo eftir smá stund fór Kiddi niður á hnén og bað mig um að trúlofast sér (veit ekki alveg hvernig ég á að segja frá þessu, en þið fattið) og auðvitað var svarið já.
Við erum bæði búin að vera í skýjunum alla helgina. Hann gaf mér alveg æðislegan hring, hann er lítill og nettur en því miður full stór þannig að hann þarf að far í minnkun eftir helgi, svo í næsta mánuði förum við saman og veljum trúlofunarhringi saman.
Jæja þá er þetta komið í þetta sinn ég ætla að reyna að vera duglegri að blogga, ég lofa.

Bæ bæ og kossar

5 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Vá en æðislegt, og innilega til hamingju með trúlofunina elskurnar mínar. Er alltaf á leiðinni í heimsókn, sjáumst vonandi fljótlega.

13 ágúst, 2006 16:39  
Anonymous Nafnlaus said...

Til hamingju elsku dúllan mín... Verð svo að fara að kíkja í heimsókn. Var bara að spánast eitthvað þegar partýið var hehe

13 ágúst, 2006 23:44  
Anonymous Nafnlaus said...

Til hamingju elsku systir. Mikið er gaman að heyra að það gengur svona vel. Hlakka til að sjá ykkur og geta óskað ykkur almennilega til hamingju báðum tveim:)

kv. Peta

14 ágúst, 2006 14:00  
Anonymous Nafnlaus said...

Innilega til hamingju með trúlofunina!!

Vonandi gengur bara allt vel!

Bið að heilsa!! :)

Kv. Arna Margrét.

15 ágúst, 2006 19:04  
Anonymous Nafnlaus said...

til hamingju þetta er frábært vona að hitta ykkur fljótlega sakna ykkar kveðja Baddý

30 október, 2006 23:59  

Skrifa ummæli

<< Home